Lilja Björk Ólafsdóttir

Lilja Björk Ólafsdóttir

Dagbók búin til á námskeiðinu: Nám og kennsla á Netinu 2003 Kennari: Salvör Gissurardóttir

This page is powered by Blogger. Isn't yours?
29.7.06
 
Heil og sæl þið sem opnið þetta öðru hverju.
Ég hef nú verið í fríi í tvær vikur og notið þess við vötn og veiði fyrir utan sólardagana heima í Reikjafold. Síðan tekur annað og sárara við, eins og sonur minn minnist um frænku sína sem lést í vikunni sem nú líður. Mágur hennar Ellu lést daginn áður af völdum ákeyrslu á hann á æskuslóðum hans á Ströndum. Hann var þar staddur að kynna afkomendum sínum heimahagana og kom við á bryggjuhátíð á Drangsnesi í leiðinni. Þetta kippir manni óþyrmilega niður á jörðina , hafi maður verið farinn að hugsa um allan unaðinn í fríi. Lilja Björk
http://yngvi.explores.is/explores/page/yngvi/Weblog?catname=%2Froflad_og_rantad



24.6.06
 
Heil og sæl kæra mín.
Nú hef ég skroppið austur á Hérað til að fagna með systur minni hálfrar aldar afmæli hennar. Við lögðum í hann kl. 17:45 á föstudagskvöld og komum austur um kl. 01:30 um nóttina. Við fórum svo heim á sunnudaginn um kl. 17:00 og komum heim um kl. 01:00 um nóttina. Lóa lagði til hross til útreiða og fórum við ásamt Sóley og Helgu Rún í ágæta reiðtúr á laugardagskvöldið. Fólkið tíndist svo austur á sunnudeginum. Mamma lét sitt ekki eftir liggja og mætti galvösk 82 ára gömul. Veður var ljúft og gott og farið var á hestbak við öll systkinin sem mætt voru á staðnum. Það vantaði aðeins á sinn hvorn endann elsta og yngsta systkinið. Ég fór svo í það að klára verkefnið mitt næsta kvöld og fram á nótt vegnma þess að skiladagur var fyrir kl. 17:00 á þriðjudeginum. Púff það kom niður á vinnunni daginn eftir og verður ekki endurtekin svona vitleysa. Næsta verkefni hjá mér er gönguferð um Hornstrandir en nú á að hefja ferð þar sem frá var horfið síðast eða að leggja af stað frá Skjaldfönn og fara yfir Drangajökul og svo vestur og í kringum jökulinn - ferðinni lýkur svo í Kaldalóni sex dögum síðar. Hrolleifsborg verður samt heimsótt ef ekki verður þess verra veður.
Ferðasagan verður svo skráð síðar. kv. ég



20.5.06
 
Halló enn líða dagarnir.
Nú eru tveir þriðju af maí liðnir og vorið hvarf jafnskjótt og það kom. Brunakuldi úti og jaðraði við snjókomu nú í verslunarleiðangrinum. Það var ekki snjókoma í hlaupunum í morgun en vel kalt, enda aðeins 1° hiti um sexleytið. Litla daman í Fellahverfi hefur nú borið nafn sitt í viku tíma þó amman hafi ekki komið sér að því að skrá það á spjöld sögunnar. Hún fékk sem sagt nafnið Thelma Björk í Laugarneskirkju síðastliðinn sunnudag. Svo ræddi presturinn um það hversu gamla fólkið væri fyrir í þjóðfélaginu. Hann tók þó fram að ekki væri hann að lýsa sínum eigin skoðunum. En svona er þetta nú, stjórnarherrar skara eld að sinni köku. Við verðum bara að vona að þessu verði breytt í náinni framtíð.
Ég er nú að æfa mig í að vinna og hugsa sem "Könnunaraðferðarkennari" og aðdánadi Reggio Emilia starfsaðferða. Mér finnst það að vísu ekki leiðinlegt.
Þetta verkefni stendur fram til 20. júní og þá verður tekið ærlegt sumarfrí.
Gangi svo öllum allt í haginn í þessum heimi.
Kv. Lilja Björk.



9.5.06
 
Heil og sæl kæra dagbók.
Hér hef ég ekki párað neitt síðan löngu fyrir páska. Nú er ég búin að fara í 5 daga göngu á Spáni og skoða þar nokkra þjóðgarða, gömul þorp, krár og landbúnað fyrir utan að einu sinni villtumst við inn á Sorpu þeirra spánverja. Það var ekki neitt gamanmál að ganga fram hjá því svæði. Landbúnaðurinn samanstóð af rauðum og stundum svörtum nautgripum sem gengu að því er virtist sjálfala í skóglendi þeirra þjóðgarðsbænda. Allir eða flestir með svonefnda kúabjöllu um hálsinn. Þá voru þarna villisvín eða svört svín, geitur og sauðfé. Alltaf voru dýrin með kúabjöllur um hálsinn og það hljómaði undurfallega upp um allar hlíðar hvar sem kvikfénaðurinn fór. Við komum eins og ég sagði í gömul þorp og sum voru á fallanda fæti unga fólkið fer til strandanna til atvinnuleitar og kemur svo kannski ekki til baka þá verður þorpið fáliðað og fólki fækkar þarna í fjöllunum. Sumstaðart eru þá enskir að setjast að og setja upp hótel, þar sem vantar mikið upp á hæfileika í matargerð. Maturinn var alveg hreint frábær hjá innfæddum og mjög ódýr. Eftir Spánargönguna stoppuðum við í London á heimleiðinni og fylgdumst með maraþoninu. Þar voru félagar okkar að gera góða hluti. Eftir heimkomuna tóku verkefnin við og ég hóf að skila af mér verkefnum sem ganga átti frá fyrir 2. maí og svo var próflestur og það svo tekið þann 8. maí.
Kennarinn hefur 6 víkur til að skila af sér og ég bíð þess vegna hin rólegasta eftir niðurstöðum. Það versta sem gæti gerst er að ég þyrfti að taka prófið upp aftur í haust, það verður samt ekki skemmtileg tilhugsun. Ég verð þá bara að eyða sumarfríinu í það helvíti. Nú get ég farið að hlaupa eins og almennur þátttakandi fram eftiur sumri. Næsta verkefni er annars að skíra stúlkuna í Fellahvarfi og það verður gert á sunnudaginn næsta.
Kv. Lilja Björk



26.3.06
 
Heil og sæl kæra dagbók ekki veit ég hvort nokkur hefur álpast hér inn nýlega en ég ætla að setja fallegar stúlkur inn á síðuna. Þetta er nú hluti af mínum kvennablóma. Annars er margt að gerast nú um stundir. Ég bregð mér senn til Spánarog geng spottakorn, annars sagði ég frá því í síðasta pistli. Kalli Hirst frændi minn og hlaupafélagi er á svipuðum tíma að far til Suður-Afríku ásamt þjálfaraparinu okkar, til að hlaupa frá strönd til strandar um 58 km. eða svo. Svo komum við saman í London og hvetjum samlanda sem taka þátt í Londonmaraþoni í ár. Þetta verður bara gaman. Myndirnar gengu víst ekki alveg eins og skildi reyni aftur næst.



21.3.06
 
Heil og sæl á nýju ári!
Ekki hef ég verið dugleg að skrifa hér inn á þessu ári. Ég hef nú eignast þriðju stelpuna sem barnabarn. Steinar og Ágústa fengu dömu þann 18. mars kl.10:52 og var hún á endanum tekin með keisaraskurð. Þær mæðgur eru enn á spítalanum en fara væntanlega heim á morgun miðvikudag ef allt gegnur samkvæmt áætlun. Stúlkan var 13 merkur og 51 cm. Ástæðan fyrir keisara var að hún sneri ekki alveg rétt, andlit sneri upp og kollur kom því ekki rétt í fæðingaveginn. Ég sé að ég skrifaði hér inn síðast fyrir jól, þá talaði ég um fjölgun hjá fjölskyldunni meir en bara mér. Áslaug Helga Jóhannsdóttir á Sauðárkróki eignaðist dóttur þann 3. mars og Sigurður og Guðmundur komu saman hjá móður sinni í janúar og skírðu börn sín. Sigga strákur heitir Ólafur Ingvi og Guðmundar stúlka heitir Eyrún Huld. Ég hef verið afskaplega upptekin við nám og vinnu og ekki verið að skrifa mikið hér. Ég ætla þó að taka mér frí frá þessu öllu um páskana og bregða mér til Spánar í gönguferð, gengið verður frá systa odda Spánar og eitthvað áleiðis upp í landið ef vel gengur getur þetta orðið árlegur viðburður sem endar þá í Aþenu. Meiningin er að vera í gönguferð í 5 daga og koma svo við í London og fylgjast með maraþoninu þar áður en farið er heim. En nú eyði ég ekki meiri tíma í þetta að sinni og sný mér að lestri á tölfræði aftur. Bless að sinni.



18.12.05
 
Heil og sæl gott fólk.
Senn líður að jólum og allir eru að komast í jólaskap. Litla barnabarnið mitt hefur nú fengið nafn og ber nafnið Ylfa Sól. Hún hlaut það við skírn í Grafarvogskirkju sunnudaginn 18. des. 2005. Eldri systirin heitir eins og flestir muna eflaust Alma Sól og hún stóð sig með prýði við skírn systur sinnar. Allt er nú að verða tilbúið hjá mér og ég fer senn að bíða eftir jólum í mínu húsi. Var að ljúka við að bóna gólfið svo það verður skínandi fínt á jólum. Annars hef ég einnig eignast tvö frændsystkin. Börn þeirra bræðra Sigurðar Þórs og Guðmundar Vals frá Hvammstanga. Guðmundur eignaðist dóttur þann 13. nóvember á afmælisdaginn hennar Gunnu frænku og Sigurður eignaðist son Ólaf Ingva þann 6. desember í Svíþjóð. Móðir mín á svo von á einum tveimur langömmubörnum í viðbót í febrúar og mars. Verða þau þá fimm á hálfu ári. Héðan er annars allt gott og ef ég verð ekki aftur á ferðinni fyrir jólin segi ég bara eigið gleðilega jólahátíð.